Lausir dagar

Djúpavatn er 0,15 km² stöðuvatn sunnan Trölladyngju og Soga á Reykjanesskaga í 195 m hæð yfir sjó. Dýpsti hluti þess er 16,7 m og það er líklega gígvatn líkt og Grænavatn á Vesturhálsi og Arnarvatn á Sveifluhálsi. Umhverfi þessa vatns er ákaflega fallegt og friðsælt. Mikið er af bleikju í vatninu en hún er fremur smá. Það var talið fisklaust þar til bleikju af Þingvallastofni var sleppt í það í kringum 1960. Vatnið er afar vinsælt hjá fjölskyldufólki, umhverfið er mjög barnvænt og einungis selt einum aðila í senn, og því hægt að hafa vatnið og veiðihúsið út af fyrir sig. Á hverju ári sleppt töluverðu af vænum urriða í vatnið og veiðivon þvi góð allt sumarið.  Vegalengdin frá Hafnarfirði er um 25 km, ekið í átt að Krýsuvík og til hægri á móts við malarnámurnar í Vatnsskarði.

 

Staðsetning: Á Reykjanesi.

Veiðisvæði: Allt vatnið.

Stangafjöldi: Ekki takmarkaður.

Veiðitímabil: 1. júní – 15. september.

Veiðitími: 07.00 - 24.00.

Leyfilegt agn: Allt agn er leyfilegt, netaveiði bönnuð.

Góðar flugur: peacock ýmis afbrigði,  litlar púpur, um að gera að reyna þurrflugurnar þegar lygnir.

Veiðihús: Ágætt veiðihús, snyrting, 2 herbergi m/ 4 kojum hvort, eldhús með gashellu, borðbúnaði og áhöldum, setustofa og  gott úti-kolagrill. Taka með sér rúmfatnað/svefnpoka, borðtuskur og viskastykki. Lyjklar af húsinu hanga við Hurðina.

Reglur: Veiðimenn mega koma í húsið kl.18.00 daginn fyrir skráðan veiðidag, og skulu vera  farnir fyrir kl. 18.00 á síðasta veiðidegi. Muna að ræsta hús og taka með sér allt rusl.

Veiðikort: Ekkert veiðikort, veiði allstaðar í vatninu.

Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi, mikilvægt að skrá allan afla.

Veiðileyfi: Félagar í SVH fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi á leyfi.is.

Leyfi í boði