Djúpavatn er 0,15 km² stöðuvatn sunnan Trölladyngju og Soga á Reykjanesskaga í
195 m hæð yfir sjó. Dýpsti hluti þess er 16,7 m og það er líklega gígvatn líkt
og Grænavatn á Vesturhálsi og Arnarvatn á Sveifluhálsi. Umhverfi þessa vatns er
ákaflega fallegt og friðsælt. Mikið er af bleikju í vatninu en hún er fremur
smá. Það var talið fisklaust þar til bleikju af Þingvallastofni var sleppt í
það í kringum 1960. Vatnið er afar vinsælt hjá fjölskyldufólki, umhverfið er mjög
barnvænt og einungis selt einum aðila í senn, og því hægt að hafa vatnið og
veiðihúsið út af fyrir sig. Á hverju ári sleppt töluverðu af vænum urriða í
vatnið og veiðivon þvi góð allt sumarið.
Vegalengdin frá Hafnarfirði er um 25 km, ekið í átt að Krýsuvík og til
hægri á móts við malarnámurnar í Vatnsskarði.
Staðsetning: Á Reykjanesi.
Veiðisvæði: Allt vatnið.
Stangafjöldi: Ekki takmarkaður.
Veiðitímabil: 1. júní – 15. september.
Veiðitími: 07.00 - 24.00.
Leyfilegt agn: Allt agn er leyfilegt,
netaveiði bönnuð.
Góðar flugur: peacock ýmis afbrigði, litlar púpur, um að gera að reyna
þurrflugurnar þegar lygnir.
Veiðihús: Ágætt veiðihús, snyrting, 2 herbergi
m/ 4 kojum hvort, eldhús með gashellu, borðbúnaði og áhöldum, setustofa og gott úti-kolagrill. Taka með sér rúmfatnað/svefnpoka,
borðtuskur og viskastykki. Lyjklar af húsinu hanga við Hurðina.
Reglur: Veiðimenn mega
koma í húsið kl.18.00 daginn fyrir skráðan veiðidag, og skulu vera farnir fyrir kl. 18.00 á síðasta veiðidegi.
Muna að ræsta hús og taka með sér allt rusl.
Veiðikort: Ekkert veiðikort, veiði allstaðar í
vatninu.
Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi, mikilvægt
að skrá allan afla.
Veiðileyfi:
Félagar í SVH fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi á leyfi.is.