Lausir dagar

Hlíðarvatn í Selvogi

Staðsetning: Í Selvogi, milli Krýsuvíkur og Þorlákshafnar. Vegalengd frá höfuðborgarsvæðinu er um 50 km sé ekið um Krýsuvík, en 60 sé ekið um Þrengslin.

Veiðisvæði: Allt vatnið en hólmarnir við Stakkavík, vestanvert í vatninu eru friðaðir á varptíma fugla.

Stangafjöldi:  Veitt er á 3 stangir.

Veiðitímabil: 1. maí – 30. September.

Veiðitími: Veiðimenn mega hefja veiðar kl. 18:00 kvöldið fyrir skráðan veiðidag og ljúka þeim sólarhring síðar. Að öðru leyti er veiðitími frjáls. Veiðimenn kvitti fyrir veru sína við vatnið í dagbók veiðihússins.
Leyfilegt agn: Fluga

Veiðihús: Ágætt upphitað veiðihús undir hlíðinni vestanverðri, upp af Botnavík. Þar er snyrting, 2 herbergi með 2 kojum hvort, svefnloft, eldhús með gashellu, borðbúnaði og áhöldum, setustofa, forstofa og gott úti-gasgrill. Taka þarf með sér rúmfatnað/svefnpoka, borðtuskur og viskastykki. Lyklar að húsi eru geymdir á krók við útihurðina.

Reglur: Húsinu skal skila hreinu til næstu veiðimanna eigi síðar en kl. 19:00. Muna þarf að taka með sér allt rusl. Lausaganga hunda við vatnið er stranglega bönnuð og séu hundar hafðir í húsinu mega þeir einungis dvelja í forstofurými. Bannað er að vera með báta á vatninu, en bumbubátar eru leyfðir eftir 1. september með því skilyrði að ekki sé verið á þeim framan við veiðimenn sem veiða frá landi.

Veiðikort: Liggur frammi i veiðihúsi og á http://www.armenn.is/skjol/Almenn/hlidarvatn.jpg

Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi og er mikilvægt að allur afli sé skráður.

Veiðiumsjón:  Ármenn, símanúmer hanga á vegg í veiðihúsinu.

Leyfi í boði