Ölfusá
Ölfusá er vatnsmesta á landsins en hún verður
til þegar Sogið hefur runnið í Hvítá skammt austan við Ingólfsfjall. Ölfusá er
um 25 km löng og hefur vatnið að mestu leiti þann lit er einkennir Hvítá og
önnur jökulvötn þó, munar mikið um tært
lindarvatni úr Soginu, en þess gætir meðfram vestari og nyrðri bakka árinnar
alveg að bæjarmörkum Selfossbæjar. Við ármótin rennur áin lygn og breið á
grynningum, fyrst til suðurs en beygir síðan til vesturs við suðaustur horn
Ingólfsfjalls. Móts við Laugardæli þrengist áin og skammt ofan við Ölfusárbrú
rennur megnið af henni í djúpri gjá í
miklum straumköstum undir brúna og mætir þar þverhníptu bergi neðan við
Selfosskirkju, þar beygir síðan áin fyrst
í norður og síðan aftur í vestur. Norðan við Selfoss bæina hefur áin breytt úr
sér aftur og verður lygnari. Hér rennur áin meðfram vestur kanti hins mikla
Þjórsárhrauns í vesturátt og til sjávar skammt austan Eyrarbakka. Skömmu áður en áin rennur í sjó fram breikkar
hún mikið og myndast þar all mikið lón. Óseyrartangi lokar þessu lón vestan
megin en ósinn sjálfur er frekar mjór og afmarkast af Óseyratanga í vestri og
Óseyrarnesi í austri. Meðalrennsli Ölfusár við Selfoss er 373 m3 / sek.
Veiðar í Ölfusá á svæðum Stangaveiðifélags
Selfoss fara fram fyrir land tveggja jarða Fossnes og Hellis. Fyrir neðan brú
er Fossnes og þar veiða menn á veiðistað sem heitir Víkin. þarna hagar þannig til að staðið er á
klapparsyllu, nokkurskonar einstigi og þar sem sylla þessi endar er hefur verið komið fyrir steyptum palli með veglegu
járnhandriði. Á árum áður var ekki veitt
af þessari syllu. Heldur stóðu menn þá upp við læk nokkurn sem rann út í ánna
miðja vegu milli brúarinnar og núverandi veiðistaðar. Einnig veiddu menn niður
með bakkanum að klettinum og þá tók laxinn oft alveg upp við bergið og sökum
þess þótti á þeim tíma óráð að standa á syllunni. Nú til dags er mest staðið á pallinum og í
lítilli vík neðan hans. Hér er veitt við heldur óhefðbundnar aðstæður í miklum
straumþunga. Veiðiaðferðin ber þess líka merki og hér er mest veitt á það sem
kallað er „aðferðin“ en aðferðin felst í því eins og flestir veiðimenn vita að
blýsakka er sett á sérstakan taum en beitan, maðkur eða túpa er á öðrum taum og
er sá, gjarnan hafður aðeins lengri.
Ofan
brúar erum við í landi Hellis og þar eru nokkrir veiðistaðir og sá sem mest er
stundaður er kallaður Miðsvæði. Miðsvæðið er alllangur veiðistaður. Efst er
talsvert stór breiða þar sem ekki er mjög straumþungt og er þar kjörin staður til fluguveiði, en
neðst á svæðinu rennur áin í meiri þrengingu og steypist þar ofaní gjá þá er
áður var minnst á. Þar er orðið býsna straumþungt og mikill ferð á færinu.
Neðan við Miðsvæðið eru tveir veiðistaðir, Adamsvík og Klettsvík. Adamsvíkin
hefur ekki mikið verið veidd nú síðari ár en þar koma þó a nokkrir laxar á hverju sumri. Klettsvík
er fengsæll staður þar sem fjöldi laxa er bókaður ár hvert. Klettsvíkin er mjög lítill veiðistaður og er
veitt í straumléttri vík mjög nærri landi. Laxinn gengur þarna með bakkanum en
rétt utar veltur áin fram með miklum boðaföllum á stórgrýttum botni. Þarna eru
oft háð tvísýn barátta því laxinn á það til að taka roku út í strauminn fyrir
utan og þá er stundum tekist harkalega
á. Ofan við miðsvæðið er veiðistaður sem kallast Hrefnutangi minna stundaður
nú en áður fyrr. Þar fyrir ofan er staður sem ber það óyndislega nafn „gömlu
ruslahaugarnir“ hann dregur nafn sitt af
því að þar á bakkanum voru fyrir margt löngu öskuhaugar Selfyssinga. Þetta er
skemmtilegur og fallegur staður beint móts við efri Laugardælaeyju, þar hentar
líka ágætlega til fluguveiða. Ofan við þennan stað er síðan nokkrir veiðistaðir
sem heita allir einu nafni Efst svæðið. Þar eru menn staddir gegnt Laugardælum
og þar er Ölfusá hvað þrengst og er þar gamall ferjustaður. sumstaðar á Efsta
svæðinu leggst stundum fiskur á áliðnu sumri og þar veiðast ár hvert þó nokkrir
laxar. Um Ölfusá gengur mikill fjöldi laxa á leið sinni á sína heimaá. Stór
hluti gengur í Sogið og eins er Hvítár stofninn stór en til hans teljast allir
þeir fiskar sem eiga sín heimkynni í þeim fjölmörg þverám sem í Hvítá renna.
Þeir laxar sem veiðast í Ölfusá innan bæjarmarka Selfoss eru að langmestu eða
öllu leiti göngufiskur enda er aðal veiðitímabilið frekar stutt, eða frá því í
endaðan júní og fram í byrjun ágúst.
Gegnum árin hafa verið stundaðar mjög
miklar netaveiðar í Ölfusá en þær eru nú að stórum hluta aflagðar sem betur fer
þó að blikur séu nú á loft hvað það mál varðar. Netaveiði í Ölfusá stendur
stangaveiði á vatnasvæði Hvítár – Ölfusár fyrir þrifum og er að okkar áliti
úrelt nýtingarform á þessari auðlind. Við teljum að best væri að leggja þær
alveg af og huga frekar að fidkirækt á vatnasvæðinu og efla það sem
stangveiðisvæði, öllum til hagsbóta enda marg sannað að stangaveiddur lax er
margfalt verðmætari heldur en fiskur sem veiddur er í net.
Staðsetning: Við Selfoss.
Veiðisvæði:
Svæði I víkin, Svæði II miðsvæði, Svæði III efsta svæði (frísvæði)
Stangafjöldi:
6
Tímabil:
20/6 - 20/09
Leyfilegt
agn: Fluga, maðkur og spónn
Góðar
flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og
Krókurinn.
Veiðihús:
Veiðihús fylgir svæðinu og stendur það við bílaplanið á neðrasvæðinu, ekki er
boðið upp á gistingu í húsinu og þar er ekki WC. Veiðimönnum ber að þrífa
húsið vandlega fyrir brottför og fjarlægja allt rusl.
Reglur:
Stangarfjöldi samtals 6. Þrjár stangir á
Svæði I og þrjár stangir á Svæði II, Þrjárr
stangir eru leyfðar á hverju svæði og eru þær seldar saman eða sitt í hvoru
lagi. Veiðimenn á Svæði I og Svæði II
skipta um veiðisvæði í hádegishlé, þannig að þeir sem eru fyrripart á Svæði I
fara seinnipart á Svæði II, og öfugt. Daglegur
veiðitími er frá kl. 7.00 til 13.00 og 16.00 til 22.00 en eftir 20.ágúst frá
kl. 7.00 til 13.00 og 15.00 til 21.00. Veiðimenn í Ölfusá skipta alltaf um
veiðisvæði í hádegishléi. þannig að þeir sem eru fyrripart á Svæði I
fara seinnipart á Svæði II, og öfugt.
Veiðikort:
Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi, mikilvægt að skrá allan afla.
Veiðileyfi: Félagar í SVFS fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi seld á leyfi.is
Umsjónarmaður / veiðivörður: Páll Árnason 696-9920