Baugstaðaós.
Ósinn er skammt austan Stokkseyrar. Til hans fellur auk Hróarsholtslækjar, Baugstaðaá sem kemur úr Skipavatni og eru veiðimörk við útfallið úr vatninu. Fiskur gengur bæði um ósinn í Hróarsholtslæk (Vola) og Baugstaðaá. Ósinn er fornfræg veiðistöð einkum fyrir góða sjóbirtingsveiði.
Fiskurinn er blandaður að stærð eða frá 1 pundi upp í 16 punda bolta. Þegar göngur koma er oft mjög líflegt og má segja að ósinn kraumi af fiski þegar mest er um að vera.
Nokkrir laxar koma einnig á land á hverju sumri, flestir á bilinu 5-10 pund. Þá er ótalin sjóbleikja sem lítillega verður vart við bæði í ósnum og einnig í Vola og gæti verið spennandi fyrir áhugasama fluguveiðimenn að kanna betur, t.d. snemma að vori.
Þá má nefna mikið fuglalíf við ósinn sem gerir hann að skemmtilegum stað að dvelja við á góðum degi.
Staðsetning: Skammt austan við Stokkseyri.
Veiðisvæði: Eitt svæði
Stangafjöldi: 2
Tímabil: 1/5 - 20/10
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn
Góðar flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn.
Veiðihús: Veiðihús fylgir svæðinu og stendur það á lækjarbakkanum að austanverðu rétt við veginn. Húsið er merkt Veiðihúsið Tungu , sjá kort.
Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4-6 manns, rennandi vatn, wc, raflýsing (sólarrafhl.), gashitun, gashellur o.fl.
Veiðimenn skulu rýma húsin fyrir kl. 19.00 að kvöldi brottfarardags til að gefa þeim sem á eftir koma kost á að koma sér fyrir áður en veiði hefst kl. 20.00.
Veiðileyfi gildir frá kl. 20.00 - 22.00 kvöldið fyrir veiðidag og frá kl. 07.00 - 20.00 að kvöldi veiðidags. Þetta veiðileyfi gildir fyrir 2 stangir og aðgang að veiðihúsi.
Veiðimönnum ber að þrífa húsið vandlega fyrir brottför og fjarlægja rusl
Reglur: Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu og eru þær seldar saman. Daglegur veiðitími er frá 07.00 - 22.00. Veiðileyfi gildir frá kl. 20.00 - 22.00 kvöldið fyrir veiðidag og frá kl. 07.00 - 20.00 að kvöldi veiðidags. Þetta veiðileyfi gildir fyrir 2 stangir og aðgang að veiðihúsi.
Öllum fiski ber að sleppa í maímánuði og eftir 10. október.
Nýtt: Kvóti er á veiðinni frá 1. júní til 9. október. Leyfilegt er að veiða fimm fiska á dag á stöng. Eftir það má veiða og sleppa. Hert veiðieftirlit verður á svæðinu
Veiðikort:
Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi, mikilvægt að skrá allan afla.
Veiðileyfi: Félagar í SVFS fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi seld á leyfi.is
Umsjónarmenn / veiðiverðir:
Steingrímur Ólafsson 897-3447
Óskar Ingi Böðvarsson 692-9177