Lausir dagar

Veiðistaðurinn.  Aðkoma er frá Biskupstungnabraut skammt vestan við Kerið í Grímsnesi og er ekið inn á Vaðnesveg um 100 metra og þá beygt til hægri inn á Snæfoksstaðaveg.  Malbikinu er fylgt um 2 km en þá er beygt aftur til hægri inn í Skógargöngin og þau leiða veiðimanninn niður að Hvítá og veiðihúsinu sem stendur þar á bakkanum.

Staðsetning:  Snæfoksstaðir liggja milli jarðanna Öndverðaness og Vaðness í Grímsnesi
Veiðisvæði:  Aðallega er veitt á tveimur stöðum, við Skipakletta sem eru framan við veiðihúsið og á strandlengjunni niður af Skipaklettum.  Sandvík heitir vík sunnan og vestan við Lambaberg.  Þar er einnig góður veiðistaður.
Stangafjöldi:  3 stangir og eru þær seldar saman.

Veiðitímabil:  28 júni - 20 september.

Veiðitími:  Veiðitíminn 07:00-13:00 og 16:00-22:00. Eftir 1. september er veitt frá 15:00-21:00

Leyfilegt agn:  Fluga, maðkur og spónn

Góðar flugur:  Túpur af ýmsum gerðum
Veiðihús: Stendur við Skipakletta.  Þar er pláss fyrir 6 manns.  Í húsinu eru tvö svefnherbergi. WC og eldhúskrókur eru samtengd lítilli stofu.  Rafmagn

Reglur: Veiðileyfi þetta gildir fyrir  3 stangir. Koma má í húsið kl 23:00 og á brottfaradegi skal  vera búið að rýma húsið kl 23:00. Veiðitíminn 07:00-13:00 og 16:00-22:00 til 20 ágúst og eftir 20 ágúst 07:00-13:00 og 15:00-21:00.  Leyfilegt agn er  fluga, maðkur og spónn. Skylt er að skrá allan afla, enginn kvóti er á Snæfoksstöðum
Veiðikort: 
Veiðibók:  Í veiðihúsi

Veiðileyfi:  www.leyfi.is

Umsjónarmenn / veiðiverðir:  Böðvar Guðmundsson gsm 864 1106

Leyfi í boði