Lausir dagar

Veiðistaðurinn.  Steinsmýrarvötn er skemmtilegt veiðisvæði sem veiðimenn geta fengið í einum pakka. Fjórar stangir eru í boði. Vötnin eru mjög skemmtileg en þau samanstanda af 2 vötnum og svo lækjum sem renna úr vötnunum, í þau og á milli og eru þessir staðir oft mjög gjöfulir. Steinsmýrarvötn eru staðsett fyrir neðan bæinn Syðri-Steinsmýri og eru í göngufæri frá veiðihúsinu. Í Steinsmýravötnum er staðbundin bleikja og urriði ásamt sjóbirtingi og sjóbleikju. Vorveiðin á svæðinu er alveg frábær og voru hollin í fyrra að fá alveg upp í 80 fiska hvert. Yfir sumarið eða í júní og júlí veiðist vel af bleikju og er hún gríðarvæn í vötnunum en meðalþyngdin á henni hefur verið rúm 3 pund. Í ágúst byrjar svo sjóbirtingurinn að ganga og er hann að ganga alveg langt fram að áramótum og tímabilið frá ágúst og út veiðitíman því yfirleitt mjög gott.

Það eru tæplega 250 kílómetrar úr Reykjavík að svæðinu og eru veiðimenn um 3 tíma að aka þangað. Ekið er sem leið liggur að Kirkjubæjarklaustri og beygt til hægri niður Meðallandsveg (204) rétt áður en komið er að Skaftárbrúnni. Meðallandsvegur er hringvegur þegar ekið er frá Reykjavík og því er einnig hægt að beygja til suðurs/hægri inn á afleggjara Meðallandsvegar (204) nokkru austan við Kúðafljótsbrú.

 

Staðsetning:  Stutt frá Kirkjubæjarklaustri, um 250 km. frá Reykjavík við bæinn Syðri-Steinsmýri.

Veiðisvæði:  Steinsmýrarvötn eru staðsett við Syðri Steinsmýri og samanstanda af tveimur vötnum og svo lækjum sem renna á milli þeirra. Í göngufæri frá veiðihúsinu.

Stangafjöldi:  4 stangir

Veiðitímabil:  1. apríl til 10. október.

Veiðitími:  Veiðitíminn 07:00-13:00 og 16:00-22:00. Eftir 1. september er veitt frá 15:00-21:00

Leyfilegt agn:  Fluga og spónn

Góðar flugur:  silungaflugur og púpur

Veiðihús: Virkilega gott veiðihús er á svæðinu og fylgir það með leyfunum. Húsið er með 2 herbergjum og góðu svefnlofti og geta 8 manns hæglega gist í húsinu.  heitur pottur er á pallinum og öll aðstaða til fyrirmyndar. Koma má í húsið kl 14 og á brottfaradegi skal einnig vera búið að rýma húsið kl 14.

Reglur: Veiðileyfi þetta gildir fyrir  4 stangir. Koma má í húsið kl 14 og á brottfaradegi skal einnig vera búið að rýma húsið kl 14. Veiðitíminn 07:00-13:00 og 16:00-22:00. Í vorveiðinni er hámarksveiði 2 fiskar á stöng á dag. Sumar og haust 3 fiskar á stöng á dag, eftir það má veiða og sleppa. Leyfilegt agn er  fluga og spónn. Skylda er að skrá allan afla, líka slepptum fiskum.
Veiðikort: http://www.steinsmyrarvotn.is/
Veiðibók:  Í veiðihúsi

Veiðileyfi:  www.leyfi.is

Umsjónarmenn / veiðiverðir:  Skúli Baldursson gsm 892 3318

Leyfi í boði