Lausir dagar
 

1 stöng í 3 daga frá kl. 16.00 mánudaginn 16. ágúst til kl. 13.00 fimmtudaginn 19. ágúst kostar kr. 267.000,-

(önnur samliggjandi stöng jafn dýr stendur til boða)

Innifalið í verðinu auk veiðileyfis er fæðis og húsgjald kr. 16.000,- pr. dag fyrir einn, auka maður kostar kr. 16.000,- á dag.
Gistingin er í einu fallegasta veiðihúsi landsins, Vökuholti í landi Laxamýrar við Laxá.

Þessi laxveiði er á Laxárfélagssvæðunum í Laxá í Þing. Og ég gæti selt tvær samliggjandi stengur sem mundu henta vel tveimur til fjórum veiðifélögum.

Þessu gæti (ef vill) fylgt úrvalsklassa leiðsögumaður, sem mundi þá kosta til viðbótar.

 

Veiðin frá opnuninni í ár og til dagsins í dag hefur verið miklu betri en mörg undanfarin ár og mikið er af óvenju stórum löxum í ánni.

Þegar hefur veiðst einn 107 sm þrír 105 sm einn 104 sm og þrír 103 sm einn 101 sm og margir í kringum 100 sm.

Leyfi í boði