Veiðistaðurinn.
Jónskvísl og Sýrlækur. Veiðisvæðið hefur nú verið lengt frá því sem var en aðeins var leyft að veiða upp að brú, nú er leyft að veiða ofan brúar upp að svokölluðu rafstöðvarlóni. Neðri skil eru enn á sama stað eða um ca.100 mtr. neðan við neðsta foss og ármótum Sýrlækjar en þar er belgur sem afmarkar neðri mörk.
Jónskvísl er nánast einn samfelldur veiðistaður en þó eru nokkrir sérlega góðir hyljir og ber þar að nefna sérstaklega Eyvindarhyl sem getur geymt mikið af fiski.
Fyrir neðan fossinn er svo góður veiðistaður sem mikið veiðist í árlega. Þá má ekki gleyma Sýrlæk sem er oft vanmetin vegna smæðar en árlega veiðast stórir fiskar í honum.
Stór bleikja er í Jónskvísl en hún er yfirleitt um 3-6 pund og veiðist þá helst í júní-ágúst en eftir það virðist hlutdeild hennar minnka.
<!--[if !supportLineBreakNewLine]-->
<!--[endif]-->
Staðsetning:
Veiðisvæði:
Stangafjöldi: 3 stangir / seldar saman
Veiðitímabil: 30 júní – 20 október
Veiðitími: Daglegur veiðitími er 7-13 og 16-22 frá 7. maí – 14. ágúst, en eftir það frá 7-13 og 15-21. Hús alltaf laust 1 klst fyrir veiðitíma og rýma skal húsið 1 klst fyrir næsta holl.
Leyfilegt agn:
Góðar flugur:
Veiðihús: Veiðihús með 4 svefnhergergjum og búnaði fyrir 12 manns ásamt heitum potti og sturtu fylgir með. Gasgrill er með húsinu. Enginn lykill er af húsi það er alltaf opið.
Reglur: Leyfilegur hámarksafli á hverja stöng á dag í sumarveiði er takmarkaður við fimm sjóbirtinga. Engar takmarkanir eru á veiði vegna staðbundins urriða og bleikju.
Þá er mönnum frjálst að veiða og sleppa.
Leyfilegt agn í sumarveiði er fluga, spónn og maðkur. Æskilegast er að veitt sé á flugu.
Skrá skal allan afla vel og skilmerkilega í veiðibók einnig þeim fiski sem er sleppt.
Veiðikort: http://www.kippur.is/images/kortjonskvisl01.jpg
http://www.kippur.is/images/kortsyrlaekur.jpg
Veiðibók:
Veiðileyfi: