Veiðistaðurinn.
Grenilækur og Fitjaflóð. Svæðið afmarkast af skiltum við veiðisvæðaskil. Að ofan eru veiðiskilin við skilti ofan við Efri-Skurð, en að neðan við skilti sem er staðsett við Neðri-Skurð, neðan við brúna.
Ferðast er um austurbakka veiðisvæðisins því vesturbakkinn er tæplega fær öðrum en fuglinum fljúgandi. Einnig má fara um nánast allt Flóðið á vöðlum, en þó þarf að gæta fóta sinna því á stöku stað er botninn laus í sér. Eins getur gróður flækst fyrir fótum veiðimanna, einkum síðsumars. Bátur hefur verið til ráðstöfunar fyrir veiðimenn en ekki er vitað um ástand hans.
Veiðisvæðið byrjar við tangann rétt ofan við Efri-Skurð en niður af honum breiðir lækurinn úr sér og nefnist þar Fitjaflóð eða Flóðið. Í Flóðinu má á sumrin finna ála með áberandi straumi en annars er vatnið þar kyrrt sem stöðuvatn. Margir telja veiðivon meiri í álunum en aðrir segja að best sé að kasta fyrir fisk við brúnirnar á sefbreiðunum. Enn aðrir segja að vesturbakkinn, þar sem drullupyttirnir eru, sé bestur. Neðri endi Flóðsins endar á svonefndri Trekt. Rennur Grenlækur þar fyrst milli hólma (Hólmasvæðið) og er það gott os fallegt svæði. Síðan sameinast svæðið í Neðri-Skurði allt til neðri veiðimarka sem eru við girðingu spölkorn neðan við brúna. Ekki er síður von á sjóbirtingi í Trektinni og Neðra-Skurði en í Flóðinu og Efri-Skurði.
Veitt er niður fyrir Brú að veiðimerkjum. Veiðistaðir fyrir neðan brú eru að austan verðu en vestan verðu fyrir ofan Brú.
Staðsetning:
Veiðisvæði:
Stangafjöldi: 4 stangir / seldar saman
Veiðitímabil:
Veiðitími:
Leyfilegt agn:
Góðar flugur:
Veiðihús: Veiðihús með 4 svefnhergergjum og búnaði fyrir 12 manns ásamt heitum potti og sturtu fylgir með. Gasgrill er með húsinu. Enginn lykill er af húsi það er alltaf opið.
Reglur: Athugið að merkta fiska skal meðhöndla samkvæmt fyrirmælum veiðivarðar.
Við viljum hvetja veiðimenn til betri skráningar í veiðiskýrslu. Það er mikilvægt að einstaklingsskrá hvern fisk.
Veiðikort: http://www.kippur.is/images/flodid02.jpg
Veiðibók: Er við bæinn Fossa, vel merkt. Vinsamlegast skráið allan afla í þær og setjið á sinn stað en ekki taka með upp í veiðihús þar sem þær gætu gleymst.
Veiðileyfi: