Lausir dagar

Veiðistaðurinn. Hlíðarvatn er 3,3 km stöðuvatn í Selvogi vestanverðum í 1m hæð yfir sjó. Mesta dýpi

þess er 5m. Afrennsli þess er Vogsós. Hlíðarvatn er bleikjuvatn algerg stærð er 5-700gr. Og ekki óalgengt að 1-2.kg. bleikjur veiðist og allt upp í 3kg. Mjótt eiði er milli vatns og sjávar og þar mun Suðurstrandarvegur

liggja. Umhverfi Hlíðarvatns er stórbrotið og náttúrufegurð mikil og fjölbreytt fugla og dýralíf.

Hlíðarvatn er mjög gjöfult veiðivatn og  er talið með bestu bleikjuvötnum á Íslandi.

Selvogur var sér sveitarfélag en er í sveitarfélaginu Ölfusi í dag og er vestasta sveitarfélag í Árnessýslu, afar fámennt er í Selvoginum í dag en var fyrr á árum fjölmennt, enda útræði þaðan á ein fengsælustu fiskimið íslenskrar lögsögu, Selvogsbanka. Strandarkirkja í Selvogi er víðfræg vegna þess hve árangursríkt það þykir að heita á hana.  Margar þjóðsögur eru til úr Selvogi og gera þær, ásamt hrjóstrugri og tilkomumikilli náttúru, dvöl við Hlíðarvatn áhrifaríka og ánægjulega.

 

Staðsetning: Hlíðarvatn í Selvogi  milli  Þorlákshafnar og Krýsuvíkur. Hlíðarvatn er ca. 50 km frá höfuðborgarsvæðinu ef ekið er um Krýsuvík en  um 60 km ef ekið er um Þrengsli.

 

Veiðisvæði: Allt vatnið. Gott kort af veiðisvæðinu er í veiðihúsinu.

 

 Stangafjöldi: 2

 

Veiðitímabil: 1.maí til 30. september

 

Veiðitími: Hefst kl 20.00 og lýkur kl 20:00 daginn eftir. Leyfilegt er að veiða á öllum tímum sólarhringsins.Skila skal veiðihúsinu kl 19:00 fyrir næstu veiðimenn


Leyfilegt agn: Fluga og spónn.


Góðar flugur: Peacock ýmis afbrigði, Vinyl ribb, Tailor, Krókurinn, og margar fleiri.


Veiðihús: Ágætt veiðihús, svefnpláss fyrir 5  og aðbúnaður hinn ágætasti,. Sólarsella er á húsinu og sérhún húsinu fyrir rafmagni. Veiðimönnum ber að þrífa húsið vandlega fyrir brottför og taka allt rusl með sér.


Reglur:   Hefja má veiðar kl.20:00 kvöldið fyrir úthlutaðan veiðidag og þeim skal ljúka sólahring síðar.

Að öðru leiti er veiðitími frjáls.  Veiðihúsinu skal skilað fyrir kl.19:00 fyrir næstu veiðimenn.

Leigutaki ber ábyrgð á skemmdum á húsinu er orðið geta á meðan dvöl hans stendur. Leigutaki

Þarf að hafa með sér diskaþurrkur og borðtuskur, þrífa húsið vel fyrir brottför og taka með sér allt rusl.

Veiðimenn eru hvattir til sýna ávallt góða umgengni og virða almennar siðareglur.

Lykill að veiðihúsinu hangir undir hægra horni hússins, sé staðið fyrir framan það.  

Tvær stangir eru leyfðar á svæðunum og eru þær seldar saman.


Veiðikort: Gott veiðikort er í veiðihúsinu.


Veiðibók: Liggur fram í veiðihúsinu. Mikilvægt að skrá allan afla.


Veiðileyfi: Félagar í Stangaveiðifélaginu Árbliki hafa forkaupsrétt í upphafi sölu veiðileifa eftir það eru öll leyfi seld á www.leyfi.is

Leyfi í boði