Húseyjarkvísl í Skagafirði - silungasvæði
Staðsetning: Við Varmahlíð í Skagafirði, (þjóðveg 1) u.þ.b. 294 km. frá Reykjavík.
Veiðisvæði: Frá Silungabakka (Silungabakki ekki með) og niður að ármótum Héraðsvatna og Húseyjarkvíslar.
Húseyjarkvísl fellur í vestari kvísl Héraðsvatna, 19 km. frá sjó. Upptök á hún á hálendinu sunnan Mælifellshnjúks. Hún bugðast um sléttlendi Skagafjarðar og er laxgeng að Reykjafossi en veiðisvæðið er 12 km. langt. Í hana gengur lax, en einnig veiðast þar 300 - 500 silungar á ári.
Veitt er á tvær stengur á laxasvæði en þrjár á silungasvæði. Lítil kvísl úr Héraðsvötnum kemur út í Húseyjarkvísl fyrir neðan Geldingarholt (staður nr. 15) og þar og niður að ós er hún lituð mestan hluta sumars. Aðgengi að ánni er gott og er hægt að keyra niður að flestum veiðistöðum.
Stangafjöldi: 3 Stangir
Veiðitímabil: 1 apríl - 20 október
Veiðitími: 12 klst á sólarhring og ráða veiðimenn hvernig þeir hagræða þeim tíma.
Leyfilegt agn: Aðeins fluga. Bestu flugurnar: Nobblerar, Zonkerar, lappaflugur og alls kyns púpur, s.s. Pheasant tail, blóðormur, Mobuto o.s.frv.
Veiðihús: Staðsett rétt ofan við ána. Ef komið er að sunnan þá er beygt niður hjá Varmahlíð eins og verið sé að fara til Akureyrar en svo er beygt strax aftur til hægri hjá Vélarveri (blátt hús á hægri hönd), svo er þeim vegi fylgt þar til valmöguleikar eru að beygja til vinstri eða halda áfram og fara upp brekku. Taka skal vinstri beygjuna og keyra nokkra metra niður og þá er maður kominn að húsinu, skilti er við húsið. Taka þarf með sér sængurföt. Húsið er með 3 svefnherbergjum og svefnlofti. Heitur pottur er við húsið gasgrill, sjónvarp, uppþvottavél og öll helstu þægindi. Þrífa skal húsið eftir notkun.
Reglur: Sleppa skal öllum urriða undir 45 cm en hirða má alla bleikju.
Veiðikort: Er í húsinu, en einnig má nálgast það á heimasíðu Ármanna.
Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi og er mikilvægt er að skrá þar allan afla.
Veiðiumsjón: Valgarður Ragnarsson S 7706040 og Ragnar Gunnlaugsson S:894-0145