Lausir dagar

Vatnsá í Mýrdal

Staðsetning: Í Mýrdal austan við þjóðveg 1 u.þ.b. 190 km frá Reykjavík.

Veiðisvæði: Vatnsá rennur úr Heiðarvatni og fellur í Kerlingardalsá, jökulá sem á upptök sín í Mýrdalsjökli. Vatnsá er tveggja stanga veiðisvæði sem er um 5 km að lengd, veiðimenn hafa aðgang að Heiðarvatni og gilda þar sömu reglur og fyrir ána.

Á vatnasvæði Vatnsár eru að veiðast þetta 300 til 1000 laxar á sumri á tvær stangir og eru þeir að koma á land frá miðjum júlí og fram til 10 október. Auk þess veiðast yfirleitt 200 til 400 sjóbirtingar, þannig að síðsumars og fram á haust er býsna líflegt á þessum slóðum.

Árið 2009 eru skráð veiði í Vatnsá og Kerlingardalsá 508 laxar, 337 urriðar og 102 bleikjur. Enginn afli er skráður í Heiðarvatni.

Stangafjöldi:  Veitt er á tvær stangir

Veiðitímabil: 25/7 – 10/10

Veiðitími: Frá 07:00 – 13:00 og seinni vaktin er frá 15:00 – 21:00, en eftir 20/9 er veitt frá 14:00 – 20:00. Á skiptidögum má veiða til 12:00 og hús rýmt innan klukkustundar.

Leyfilegt agn: Á svæðinu er eingöngu heimilt að veiða á flugu og eru veiðimenn hvattir til að veiða á agnhaldslausar flugur.

Veiðihús:   Veiðihús er innifalið. Ekið er framhjá Heiðarbæjunum norðan við vatnið en húsið stendur spöl niður með ánni til hægri. Það með þremur 1-2 manna herbergjum og er að öllu leyti ágætlega búið. Gasgrill er á staðnum.

Innifalið í veiðileyfum eru þrif á húsinu við brottför og því þurfa veiðimenn að virða brottfarartímann. Veiðimenn sem veiða frá 20/9 þurfa að sýna biðlund við afhendingu á húsinu ef þrif standa yfir.

Reglur: Heimilt er að drepa 3 laxahænga á stöng á dag og en þó aðeins laxa undir 68 cm og einnig er heimilt að drepa allan silung undir 55 cm stærð. Mælst er til að menn sleppi bæði sjóbirtings- og laxahrygnum. Öllum laxi er sleppt í október. Allur akstur er bannaður utan slóða. Lesið vel allar reglur sem liggja fyrir í veiðihúsinu áður en veiði hefst.

Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi og er mikilvægt að skrá þar allan afla.

Veiðiumsjón: Grétar Einarsson s: 863 – 7343 og Guðni Einarsson s: 868 – 7897

Leyfi í boði