Logo
Um okkur
Fréttir
Veiðisvæðin okkar
Laus leyfi
Hafa samband
Tenglar
Karfan
Ár
Skálmardalsá
Skógá
Vatnsá
Húseyjarkvísl
Grímsá
Svartá í Skagafirði
Vötn
Hlíðarvatn - Ármenn
Lausir dagar
Skógá undir Eyjafjöllum
Staðsetning:
Skógáin er við þjóðveg 1, í 150 kílómetra farlægð frá Reykjavík og er nokkurn veginn mitt á milli Víkur í Mýrdal og Hvolsvallar.
Veiðisvæði:
Vatnasvæði Skógár samanstendur af Skógá og Kvernu sem kvíslast við Kvernubrú og rennur minni kvíslin í Markúsarlón og aftur í Kvernu rétt ofan ármóta Skógár. Svæðið sem veitt er í samanstendur af 7 kílómetra kafla Skógár, yfir 2 kílómetra kafla Kvernu. Veiðisvæðin eru 6 og eru um 70 hyljir stórir sem smáir sem menn hafa um að velja. Stangirnar eru fjórar sem deila þessum 70 hyljum með sér.
Aflinn árið 2009 var 911 laxar, 15 urriðar og 455 bleikjur og árið 2008 veiddust 1553 laxar, 15 urriðar og 586 bleikjur.
Stangafjöldi:
Veitt er á tvær stangir.
Veiðitímabil:
20/7 – 30/9
Veiðitími:
Veitt er frá 07:00 - 13:00 og frá 16:00 - 22:00, nema á skiptidögum en þá er veitt til 12:00. Eftir 1/8 er veitt frá 15:00 - 21:00 á seinni vakt.
Leyfilegt agn:
Leyfilegt agn er fluga og maðkur. Gjarnan er veitt á þungar túbur í Skógá, t.d. Skógá og Sunray shadow, en í Kverná henta léttari flugur betur.
Veiðihús:
Mjög gott veiðihús fylgir veiðileyfunum með allri aðstöðu. Til að finna það er ekið af hringveginum í átt að Skógafossi og er veiðihúsið endahúsið í götunni. (stór verönd við húsið) Til hliðar við veiðihúsið er Hótel Skógar. Lyklana má nálgast á bænum Drangshlíðardal, sem stendur vestan Skógár. Kaupa þarf þrif á húsinu að lokinni dvöl og kosta þau 5000 kr. Veiðimenn leggja sjálfir til sængurföt og handklæði.
Reglur:
Kvótinn miðast við 6 laxa á stöng á dag og 4 bleikjur eða að hámarki 10 fiska. Eftir að kvóti næst skulu veiðimenn eingöngu veiða á agnhaldslausar flugur og sleppa öllu.
Mikið af silungi hefur verið merktur og eru veiðimenn beðnir um að skila þeim merkjum (þau eru í baki fisksins). Einnig er laxinn örmerktur og eru menn beðnir um að kynna sér hvernig þau merki skuli skorin af áður en menn skera sjálfir. Skilið merkjum til veiðivarðar og munið að merkja örmerkjapokana með umbeðnum upplýsingum áður en þið setjið merkin í pokana.
Akstur utan vega er ekki leyfður og skal aðeins aka slóða sem með ánni liggja. Sýnið aðgát þegar vaðið er vegna sandbleytu, einnig þegar ekið er yfir ána.
Veiðikort:
Kort af veiðisvæðinu er í veiðihúsinu og það má einnig fá á slóðinni:
http://www.skoga.is/inc/skoga/veidikort.pdf
.
Nánari lýsingar er að finna á vefsíðunni
http://www.skoga.is
.
Veiðibók:
Liggur frammi í veiðihúsi, mikilvægt er að skrá allan afla.
Veiðiumsjón:
Ásgeir Ásmundsson S: 660 – 3858 eða Lilja Sigurgeirsdóttir í Drangshlíðardal S:487 - 8826
Opna / loka
Leyfi í boði
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður