Lausir dagar

Skálmardalsá

Staðsetning: Reykhólasveit, Austur-Barðastrandarsýslu. Áin rennur í Skálmarfjörð í Reykhólasveit, á sunnanverðum Vestfjarðakjálkanum, um 300 km akstur frá Reykjavík og 150 km frá Búðardal.

Veiðisvæðið:   Öll áin, nema neðsti hluti hennar að austanverðu sem tilheyrir Illugastöðum, sem eiga þar veiðirétt. Mörk svæðanna eru við raflínu sem liggur yfir ána uþb. 0,5 km ofan við brúna á þjóðveginum. Veiðisvæðið er um 5 km langt með um 30 merktum veiðistöðum.

Stangafjöldi:  Veiða má á þrjár stengur, sem eru seldar saman.

Veiðitímabil: Veiði hefst um miðjan júlí og stendur út ágúst.

Veiðitími:  Veiðitími hefst kl. 15:00 á skráðum veiðidegi og lýkur sólarhring seinna.
Veiða má 12 tíma á dag og ráða menn veiðitíma sínum. Á skiptidegi skal veiði þó hætt eigi síðar en kl. 13:00

Leyfilegt agn: Ekki má nota annað agn en flugu. Góð sjóbleikjuveiði er í Skálmardalsánni, gjarna frá 300 - 800 fiskar á ári. Meðalþyngd skv. skýrslum Veiðimálastofnunar er eitt til tvö pund.

Veiðihús:   Aðgangur að veiðihúsi er innifalinn í verði veiðileyfisins. Það er gamla íbúðarhúsið í Skálmardal, en það hefir verið endurinnréttað að hluta. Þrjú tveggja til þriggja rúma herbergi eru á efri hæð hússins auk svefnaðstöðu í stofu. Ekkert rafmagn er í húsinu, en góð gaseldavél og öll eldhúsáhöld. Veiðimenn þurfa að koma með sængur eða svefnpoka. Hafa skal samband við stjórn Ármanna áður en farið er af stað vegna upplýsinga um lykil.

Reglur:  Húsinu skal skila hreinu til næstu veiðimanna eigi síðar en kl. 14:00. Muna þarf að taka með sér allt rusl.

Veiðikort: Kort af veiðisvæðinu er ekki til, en í veiðihúsi er loftmynd sem sýnir nánar veiðistaði og mörkin við land Illugastaða þar sem þau liggja yfir ána.

Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi og er mikilvægt að skrá allan afla.

Veiðiumsjón:  Pétur Pétursson.    Símar: 897 1498 og 551 2112
Netfang: petur@vatnsdalsa.is

Leyfi í boði