Tunga - Bár.
Vatnasvæðið er um 11 km langt eða frá gömlu brúnni við Bár í nágrenni Selfoss að brúnni við veiðihúsið í Tungu skammt austan Stokkseyrar. Gott veiðikort er af svæðinu með vegamerkingum og bæjarnöfnum svo vel má átta sig á aðkomu að svæðinu og einstaka veiðistöðum. Á bakhlið veiðikortsins er að finna greinargóða lýsingu á öllum helstu veiðistöðum á svæðinu.Fluguveiði er vaxandi á þessu svæði sem annarsstaðar í læknum á kostnað maðksins sem þó gefur oft góðan afla. Sjóbirtingur er aðall svæðisins en hann er kominn á svæðið fljótlega eftir að hans verður vart í ósnum. Þá fást venjulega nokkrir laxar á hverju sumri. Svæðið gefur meiri afla en skýrslur sýna því ekki er veiðibók á svæðinu en ekki næst í nema hluta veiðimanna til að fá upplýsingar um veiði.
Staðsetning: Skammt austan við Selfoss
Veiðisvæði: Eitt svæði
Stangafjöldi: 2
Tímabil: 1/6 - 20/10
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn
Góðar flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn.
Veiðihús: Ekkert veiðihús fylgir svæðinu.
Reglur: Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu og eru þær seldar saman. Daglegur veiðitími er frá 08.00 - 20.00. Frá 1. maí til 20, sept hefur hluti svæðisins fylgt Baugstaðaós.
Veitt er frá 08.00 -20.00 samfleytt. Þetta veiðileyfi gildir fyrir 2 stangir.
Reglur: Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu og eru þær seldar saman. Daglegur veiðitími er frá 07.00 - 22.00. Veiðileyfi gildir frá kl. 20.00 - 22.00 kvöldið fyrir veiðidag og frá kl. 07.00 - 20.00 að kvöldi veiðidags. Þetta veiðileyfi gildir fyrir 2 stangir og aðgang að veiðihúsi.
Öllum fiski ber að sleppa í maímánuði og eftir 10. október.
Nýtt: Kvóti er á veiðinni frá 1. júní til 9. október. Leyfilegt er að veiða fimm fiska á dag á stöng. Eftir það má veiða og sleppa. Hert veiðieftirlit verður á svæðinu
Veiðikort:
Veiðibók: Er í póstkassa við Brúnna ....., mikilvægt að skrá allan afla.
Veiðileyfi: Félagar í SVFS fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi seld á leyfi.is
Umsjónarmenn / veiðiverðir:
Steingrímur Ólafsson 897-3447
Óskar Ingi Böðvarsson 692-9177