VOLI.
Svæðið er mjög stórt eða með Bitrulæk a.m.k. 12-14 km. Veiðikort er af svæðinu með góðum vegamerkingum og bæjarnöfnum auk merktra veiðistaða. Svæðið er í nágrenni Selfoss eða innan við 10. mín. akstur hvort sem farið er að efri hluta svæðisins ( t.d. veiðihúsi ) eða að neðri veiðimörkum sem eru gamla brúin við Bár.
Á þessu svæði er staðbundinn urriði, staðbundin bleikja, sjóbirtingur, sjóbleikja, lax og jafnvel stöku áll. Má segja að von sé í ágæta silungsveiði frá vori og fram til loka á haustin á Volasvæðinu
Staðsetning: Skammt austan við Selfoss
Veiðisvæði: Eitt svæði
Stangafjöldi: 2
Tímabil: 1/5 - 20/10
Leyfilegt agn: Eingöngu er heimilt að veiða á flugu í maímánuði og eftir 10. október og ber að sleppa öllum sjóbirtingi á þessum tímabilum. Frá 1. júní til 9. október má veiða á flugu, maðk og spón.
Góðar flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn.
Veiðihús: Veiðihús er á svæðinu og stendur það við gömlu brúna við Vola. Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4-6 manns, rennandi vatn, wc, raflýsing ( sólarrafhl.), gashitun, gashellur, Kolagrill o.fl.
Veiðimenn skulu rýma húsið fyrir kl. 19.00 að kvöldi brottfarardags til að gefa þeim sem á eftir koma kost á að koma sér fyrir áður en veiði hefst kl. 20.00.
Veiðimönnum ber að þrífa húsið vandlega fyrir brottför og fjarlægja rusl.
Reglur: Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu og eru þær seldar saman. Daglegur veiðitími er frá 07.00 - 22.00. Veiðileyfi gildir frá kl. 20.00 - 22.00 kvöldið fyrir veiðidag og frá kl. 07.00 - 20.00 að kvöldi veiðidags. Þetta veiðileyfi gildir fyrir 2 stangir og aðgang að veiðihúsi.
Öllum fiski ber að sleppa í maímánuði og eftir 10. október.
Nýtt: Kvóti er á veiðinni frá 1. júní til 9. október. Leyfilegt er að veiða fimm fiska á dag á stöng. Eftir það má veiða og sleppa. Hert veiðieftirlit verður á svæðinu
Veiðikort:
Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi, mikilvægt að skrá allan afla.
Veiðileyfi: Félagar í SVFS fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi seld á leyfi.is
Umsjónarmenn / veiðiverðir:
Steingrímur Ólafsson 897-3447
Óskar Ingi Böðvarsson 692-9177