Fréttir
Veiði lokið í Steinsmýrarvötnum
24.10.2011
Vorum að fá þessar fréttir frá Skúla á Steinsmýri:
Það var líf og fjör í Steinsmýrarvötnum síðustu veiðidagana. Síðasta hollið var með góðan afla, 46 fiska og var um helmingur sjóbirtingur. Fengu þeir meðal annars einn 7 punda og nokkra 4 og 5 punda birtinga.
Alls var veiðin í Steinsmýrarvötnum þetta árið 944 fiskar, og af því voru 24 bleikjur
kveðja Skúli
Veiðileyfi á útsölu.
19.9.2011
Veiðileyfi í Skógá á útsölu.
Dagarnir eru 26-28.september.
Verð pr. stöng verður 11.000kr. í stað 23.000kr.
Stangirnar eru seldar stakar.
OG,,,í kaupbæti fylgja 2 stangir í Kerlingadalsá sömu daga og veitt er í Skógá.
-frekari upplýsingar um fyrirkomulagið eru hjá umsjónarmanni Skógár; Ásgeiri í síma 660 3858
Við höfðum fregnir af Ármönnum sem voru í Skógá við veiðar í gær og fyrradag og höfðu veitt 5 nýgengna laxa.
Þ.a útlit er fyrir að laxinn sé að ganga núna.
Vel er að veiðast í Ölfusánni
30.8.2011
Núna í kvöld er Ölfusáin komin í rúmlega 270 laxa og eitthvað af sjóbirtingi er líka komið á land.
Núna síðustu daga hefur svæði III komið mjög sterkt inn og einni Hrefnutanginn.
Ölfusáin er mjög falleg á litinn þessa dagana og langt síðan að hún var svona tær, einnig er vatnshæðin óvenju skemmtileg.
Eitthvað er af lausum dögum og eru þeir til sölu á www.leyfi.is ATHUGIÐ að veitt er til 20 september í Ölfusánni.
Meðfylgjandi mynd er af Hrefnutanga á miðsvæðinu í Ölfusá
mynd: GMJ
kv,
leyfi.is
Ágætis veiði er á sjóbirtingi í Tunga - Bár
25.8.2011
Hann Steingrímur Ólason félagsmaður í SVFS var við veiðar í gær í Túnga - Bár og veiddi ágætlega, tvo 2ja punda og einn 7 punda. Hann segir vatnshæð vera ágæta og nokkuð af fiski á svæðinu. Lausir dagar eru til sölu á www.leyfi.is
kv,
leyfi.is
Góð veiði í Kleifarvatni
22.8.2011
Góð veiði hefur verið í Kleifarvatni það sem af er sumars. Halldór Gunnarsson veiðimaður sendi okkur myndir af sér með fallegar bleikjur sem hann veiddi í sumar, vísum hér í textann frá Halldóri.
Daginn
Langaði bara benda ykkur á flottar bleikjur úr Kleifarvatni J
Búinn að vera fá margar stórar og góðar síðastliðna vikuna...
kv,
leyfi.is
Hörku veiði síðustu daga í Ölfusá.
22.8.2011
Núna kl 19:00 voru komnir 12 laxar á land úr Ölfusá og veiðin því komin í 243 laxa þetta árið. Það er rétt að benda á að nú er vatnið í Ölfusánni mjög gott, vatnshæð góð og enginn litur í vatninu og auk þess má benda á að eitthvað er af lausum dögum í Ölfusá til sölu á www.leyfi.is
kv,
leyfi.is
Ævintýralega góð veiði í Baugstaðaós.
22.8.2011
Síðustu vikurnar hefur verið alveg ævintýralega góð veiði í Baugstaðaós. Stórir sjóbirtingar og einnig töluvert af laxi hefur verið að veiðast.
Við fengum senda mynd frá honum Frímanni Birgi Baldurssyni sem er við veiðar í Baugstaðaós.
kv,
leyfi.is
Veiðifrétir úr Baugstaðaós.
13.6.2011
Vorum að fá fréttir frá veiðimanni sem var við veiðar í Baugstaðaós, látum þær fylgja hér að neðan.
Daginn,
Vildi fá að senda ykkur mynd sem tekinn var í gær í Baugstaðaós með 10 punda sjóbirting.
Það var fín veiði þarna og kom á land þessi 10 punda og tveir aðrir, 5 og 6 punda sjóbirtingar.
Þeir voru allir teknir á maðk
Kv
Vignir
Skipti á veiðileyfum.
26.5.2011
Okkur var að berast beiðni frá veiðimanni sem á veiðileyfi í Djúpavatni og er hann að reyna að skipta á dögum ef það hentar einhverjum að skipta, sjá hér að neðan. Áhugasamir endilega snúið ykkur beint til Benedikts veiðimanns.
Góðan dag
Ég á leyfi í Djúpavatni 30.júní (tek við vatninu kvöldið 29.júni) en er í
bobba með að nýta mér leyfið.
Því datt mér í hug að biðja ykkur að setja á vefinn hjá ykkur fyrirspurn
hvort að einhver góðhjartaður einstaklingur væri til í að skipta við mig á
dögum.
Þeir dagar sem ég hafði í huga í skiptingunni eru: 1 júní, 3 júní eða 20
júní.
Ég er sem sagt að falast eftir því að skipta 30.júní fyrir eitthvað af
fyrrnefndum dagsetningum (1, 3, 20 júní)
Takk kærlega
Benedikt Grétarsson beg20@hi.is Sími: 697-6414
Veiðistaðakennsla á Snæfoksstöðum.
17.5.2011
Veiðistaðakennsla á Snæfoksstöðum.
Bræðurnir Hafsteinn og Brynjar Jónssynir ætla að taka að sér að kenna handbrögð stangveiða á Snæfoksstöðum í Grímsnesi eftirtalda daga í sumar frá kl 16:00 - 19:00;
4/7, 10/7, 15/8, 23/8 og 8/9. Þeir bræður verða staddir við veiðihúsið við Hvítá í Snæfoksstaðalandi alla dagana. Veiðimenn, endilega að taka þessa daga frá.
Snæfoksstaðir hafa þótt erfiður veiðistaður, hér er því kjörið tækifæri fyrir áhugasama til að læra af mönnum sem gjörþekkja aðstæður í Hvítá við Snæfoksstaði. Kennslan er endurgjaldslaus. Veiðimenn þurfa að koma með sinn veiðibúnað og þiggja góð ráð hjá þeim bræðrum.
Allir velkomnir.
Vert er að benda áhugasömum á að laus veiðileyfi á Snæfoksstaði fást á leyfi.is
kv,
leyfi.is